So I said: Do you love me?
28.04.2009 12:44:18 / Hildur

Afmælisbarn dagsins!!


Apríl afmælisbarn númer 3 á afmæli í dag... 
INGA RÓS HOTNESS MONSTER!!!!

tTil hamingju með afmælið elsku besta Inga okkar..... hlökkum til að sjá þig í kvöld og knúsa þig og spila :)

kveðja,
þínar Fatass vinkonur =*

» 2 hafa sagt sína skoðun

22.04.2009 10:57:21 / Inga

Hildur á afmæli!!


Jæja þá á enn eitt aprílbarnið okkar afmæli!!
En það er engin önnur en stuðboltinn, lærdómsljónið og yndisfagra meyin okkar hún Hildur Grétarsdóttir!!


Til hamingju með afmælið elsku Hildur okkar! Þú ert æði! =*
Hlökkum til að sjá þig í kvöl.. kl 8:30 sharp!
Þínar
Fatass skvísur! =*


» 5 hafa sagt sína skoðun

18.04.2009 21:41:54 / Inga

Söngkeppni Framhaldsskólanna 2009

Omg stelpur ég vona að þið séuð að horfa á:



Ef ekki þá eruð þið að missa af miklu, sérstaklega ef þið misstuð af Landbúnaðarháskólanum!! hahaha þær voru að gera góða hluti skal ég segja ykkur! Góða hluti!! hahaha ;)

Annars get ég ekki beeeðið eftir að vera búin í prófum, er að taka prófmygluna með stæl, einbeiti mér miklu meira af því að vera með prófmyglu heldur en nokkurntíman að læra.. Einbeitingarleysið er á alvarlegu stigi, er mikið að spá hvort hægt sé að leita sér læknisaðstoðar við lærdómsleti??

Vóts hvað ég hlakka svo sjúklega til að leika við ykkur uppáhalds og fallegustu vinkonur mínar!!
Lovjú ALOT!!!

Kv. Inga study nothing alot! ;)


» 9 hafa sagt sína skoðun

13.04.2009 14:09:30 / Inga

Hulda Afmælisbarn

Jæja þá er komið að því! Fyrsta aprílafmælisbarnið okkar á afmæli í dag!!
Ég er ekki frá því að guðirnir séu að fagna því með okkar yndisfögru mey því veðrið í dag er alveg æðislegt! Alveg eins og hún Hulda okkar!! :haha:



Til hamingju með daginn fallega stelpan okkar!!
Við elskum þig..
Þínar fatass pjásur!! =*


» 4 hafa sagt sína skoðun

05.04.2009 17:17:41 / Hulda

Hittingur?????

Hæ elskurnar mínar!!

Nú er mig farið að þyrsta í að hitta ykkur, það er alltof alltof langt síðan! Hvernig eru prófin? Hvenær eruði lausar. getum tekið bara vídjó kvöld eða spila kvöld eða eitthvað. Hvað segiði??

Saknisakn,
Hulda


» 7 hafa sagt sína skoðun

20.03.2009 17:22:30 / Hildur

Dangerous girl, I'm jurning for you löööööv!


laugardagskvöld:
Háaleitisbraut
mæting milli 20-21
* ljót föt
* áfengi
* hressleiki :)

» 7 hafa sagt sína skoðun

10.03.2009 16:16:28 / Inga

Fresta eða bresta ?

Stelpur mínar, hvað segið þið um að fresta partíinu um eina helgi ?
Halda það þá 21. mars 2009 ? 

Ég skil ekki hvað málið er með okkur að komast aldrei allar á sama tíma. Þetta er alveg ótrúlegt !

Allavega, látið vita af ykkur.

Ást í poka, sem ekki má loka,

Inga sæta spæta;)

» 23 hafa sagt sína skoðun

03.03.2009 21:47:11 / Hildur

Påskeægg ja tak!


Dúllurnar mínar, ein lauflétt og eggjandi könnun:

ÝTTU HÉR EF ÞÚ ÞORIR :)


» 4 hafa sagt sína skoðun

03.03.2009 12:12:27 / Inga

Bíóferð!

Jæja stelpur.. ætlaði bara að minna á bíóferðina okkar á morgun! vúhúúú :D
Mæting kl 20:00 í Smárabíó annað kvöld á aðal myndina! "Hes just not that into you" vúhúú :D


Hlakka til að sjá ykkur uppáhalds stelpurnar mínar!!
Ást og hamingja
kv. Skemmtinefnd fatass!! hahahaha ;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

01.03.2009 15:08:24 / Inga

Ljótufatapartý!!

Jæja elskurnar.. Nú hefur komið dagsetning á ljótufatapartýið okkar alræmda!!
14. mars 2009 
er dagsetningin sem okkur datt í hug að flestir kæmust! Þetta verður awesome!! Svo gerið ykkur reddý fyrir alræmdasta og hallærislegasta party ársins.. (Koló eða Hjálpræðisherinn bjóða fram þjónustu sína, vanti einhverjum hrikalega hallærisleg föt og á ekki mömmu eins og ég sem hendir aldrei neinu!) hahahaha ;)



Verðlaun fyrir ljótasta búninginn, hallærislegustu greiðsluna og hrikalegustu skónna.. svo nú er um að gera að spíta í lófana, leggja höfuðið í bleyti og endilega láta ímyndunaraflið hlaupa með sig í gönur, því í þessu partý er allt leyfilegt.. meira að segja SVITABÖND!! hahaha Jana ég treysti á þig.. þér finnst þau svo töff! ;)

Hlakka til að heyra frá ykkur..
XOXO Hallærispía! ;)


» 8 hafa sagt sína skoðun

22.02.2009 17:33:21 / Hildur

Alltaf gott að vera soldið tímanlega!


Er ekki kominn tími á stelpuferð í bíó??
Byrjað að sýna myndina "he's just not that in to you" sem ég held að sé awesome chick flick ;)

http://www.impawards.com/2009/posters/hes_just_not_that_into_you_ver2.jpg

Hugmyndin var að fara miðvikdagskvöldið eftir rúmlega viku semsagt 4.mars... hverjar eru game?
Svo er allt í vinnslu með væntanlegt ljótufatapartý... úúúúllalla, stay tuned :)


» 16 hafa sagt sína skoðun

16.02.2009 22:33:37 / Inga

Missti af Vélinni!

Ok stelpur, ég átti alltaf eftir að blogga um það þegar ég og minn heittelskaði misstum af vélinni á leið til Tenerife!
Núna hefður það hins vegar komið í ljós að ég þarf ekkert að blogga um viðbrögð mín þar sem þau voru tekin upp á myndband og sett á neðtið! Núna getið þið horft á það hvernig ég brást við að missa af vélinni!! :haha:

Þegar ég missti af vélinni!
Hahahahaha
Hvernig lýst ykkur á? ;)

Annars ætla ég að stinga upp á djammi bráðum.. How about it? Hvað segiði um að hafa þema? 80's, 90's, nörda, Britney, ljótufata.. bara eitthvað!!!
Endilega komiði með hugmyndir! :D
Eigum við ekki að  halda hitting í vikunni.. spila eða horfa á vídjó! Hvað segiði um Hryllings þema.. Haloween myndirnar eða Friday the 13th, promnight eða eitthvað þannig??
Hlakka til að heyra frá ykkur!! vúhúúú :D

Kv. Inga sem fríkaði út á flugvellinum! hahahahaha ;)


» 20 hafa sagt sína skoðun

19.01.2009 14:24:44 / Inga

Partytime! :)

Jæja elskurnar mínar.. þá er komið að því! FYRSTA PARTÝIÐ síðan að litlu englarnir komu í mallana á mömmunum sínum! :haha:
Laugardaginn 24. janúar ætlum við að halda okkar VÍÐFRÆGU FATASSPARTÝ!! hahaha ;)
Allavegana partýið verður hjá okkur á Nýbýlaveginum, mæting svona um 7 leytið, matur og meðlæti verður á boðstólnum! :haha:



Var að hugsa með einhvern eftirrétt.. er einhver með hugmyndir?
Já annars er meira á dagskránni, vondulagadiskurinn sem Steinþór ætlar að mixa og jafnvel singstar ef einhver nennir og nennir þá að taka allt draslið með sér! ;)

Jeijj ég hlakka svoo til að sjá ykkur beibís!!
Kv. Inga sem er alltaf á skrallinu! hahahaha djóka ;)


» 28 hafa sagt sína skoðun

12.01.2009 12:22:45 / Inga

Sumar í janúar.

Hey stelpur.. ég er með eina ósk, ekki vera með sumarbústaðarferðina næstu helgi.. ég verð nefnilega erlendis þá!! ;)
Jább haldið ykkur fast, því ég er að fara til TENERIFE Á MORGUN og verð í eina viku!! vúhúú
Hildur, núna er ég hætt að vera abbó út í þig! haha ;)



Annars hlakka ég ótrúlega til sumarbústaðarferðarinnar, það verður æði! :haha:
Lovjú girls, sjáumst eftir viku! ;)


» 9 hafa sagt sína skoðun

08.01.2009 20:14:08 / Jana

Summerbásteið?

Jæja stelpur mínar, hvað segiði þá? Það er svo lítið að gerast hér á síðunni að ég ákvað bara að taka málin í eigin hendur 8)

Ég var að hugsa málið og mér finnst við ekki nógu duglegar að gera eitthvað saman.. jú jú auðvitað eru regluleg spilakvöld og svona en frumlegheitin eru ekkert að gera útaf við okkur if you know what I mean ;) Þess vegna datt mér eitt mjög sniðugt í hug. SUMARBÚSTAÐARFERÐ!

Börnin og makarnir geta komið með og við getum eldað saman, drukkið vín (fyrir trippin í hópnum), spjallað, hlegið, farið í pottinn... og svo framvegis. Svo ættum við nú aldeilis að geta SPILAÐ líka!!!! :d Kósí kósí!

Má ég benda á að það eru rúmlega fimm ár síðan ég hef farið með ykkur í bústaðarferð!! Þá var haust og árið var 2003 og bústaðurinn var Akurgerði! Hver man ekki eftir "góðu" lyktinni af sundfötunum okkar og frasanum "VÚBBÍDÚ Maggi" sem varð einmitt til í umræddri ferð. Good times indeed.:d

Þetta er bara hugmynd... og ef þetta er eitthvað sem við getum hugsað okkur að gera er ég meira en til í að taka að mér formennsku skipulagsnefndar!

Koma svo girls!!! Ef þið takið ekki vel í þetta, valdiði mér vonbrigðum og hana nú.

» 15 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 30
Heimsóknir
Í dag:  3  Alls: 91370
Leitarbox