So I said: Do you love me?
22.02.2009 17:33:21 / Hildur

Alltaf gott að vera soldið tímanlega!


Er ekki kominn tími á stelpuferð í bíó??
Byrjað að sýna myndina "he's just not that in to you" sem ég held að sé awesome chick flick ;)

http://www.impawards.com/2009/posters/hes_just_not_that_into_you_ver2.jpg

Hugmyndin var að fara miðvikdagskvöldið eftir rúmlega viku semsagt 4.mars... hverjar eru game?
Svo er allt í vinnslu með væntanlegt ljótufatapartý... úúúúllalla, stay tuned :)

Inga Rós skrifaði
OMG OMG OMG!!! Ég er svoo spennt, það er svoo mikið að gerast! þetta verður awesome!! Hlakka til að fara í bíó með ykkur elskunum mínum JEIJJ! :D
Jana Rós skrifaði
Oooo ég er svo til í það stelpur!!! Ég er laus þetta kvöld m.a.s. :) En eitt, eruði lausar laugardagskv. 28.? Ég var að spá í að bjóða ykkur heim ef það er áhugi fyrir því....
Hildur skrifaði
Dáldið busy næsta helgi hjá mér. 2 verkefni og próf beint eftir helgi en ég gæti örugglega alveg kíkt í heimsókn um kvöldið :)
Hulda skrifaði
Já ég er svoo til í bíó :) En ljótufata eruði að grínast??? Ég er ein af þessum skynsömu sem losar sig við föt þegar þau eru hætt í notkun. Fylli ekki skápa, skúffur og poka af gömlum fötum.Var til dæmis að taka fataskápinn minn í gegn núna í vikunni og það er allt farið til rauða krossins, 1 stk svartur ruslapoki!!!
Sunna skrifaði
Hulda mín, það er engin að tala um gamlar Tark buxur og Spice girls bol, eitthvað ennþá meira ljótt og ýkt ! Púffermar og tjullpils er ofarlega á listanum, eða allavega eins og ég skil þetta þema..

En annars er ég til í bíóferð =)
Inga Rós skrifaði
eða ferð í Hjálpræðisherinn eða kolaportið.. það er hægt að finna ýmislegt mis töff þar! hahaha :)
Hulda skrifaði
Haha ég kem kannski upphandlegg í mjónu tark buxurnar!!! En ég reyni að finna eitthvað:)
Hildur skrifaði
Já, endilega að skella sér í Koló Hulda... ég treysti á þig að koma í einhverju virkilega ljótu!! =)

Við Inga vorum að koma með þá hugdettu að ljótufatapartýast laugardaginn 6.mars.... hvernig hljómar það elsku sætu stelpurnar mínar??
Hildur skrifaði
smá tæknileg mistök að stríða okkur... það er að sjálfsögðu laugardagurinn 7.mars en ekki 6.mars

LAUGARDAGUR 7.MARS?
Jana skrifaði
Ég verð hjá Rebekku þá helgi eins og ég var búin að segja ykkur.
Hulda skrifaði
Ég verð í Stykkishólmi.
Hildur skrifaði
óóókei, þá spáum við aðeins í þessu party áður en við ákveðum eitthvað :)
Rebekka skrifaði
Hvernig væri bara að plana eithvad geggjað ?? bara þegar allir eru lausir í apríl eða eithvad ..Eða bara þegar ég flyt í nýja húsið þá getið þið komið í road trip :)
Sunna skrifaði
Rebekka mín, eruð þið Sigurjón að fara að kaupa ykkur hús ?

Apríl segirðu...Þá er svo stutt í próf og bla bla bla..
Við verðum bara að plana eitthvað í maí eftir próf held ég...
Hulda skrifaði
ók sko ég ætlaði að vera geðveikt dugleg og setja inn blogg en það kemur bara villa!! Bara láta ykkur vita að þið fáið ekkert!!
Rebekka skrifaði
Já eða það er búið að byggja húsið erum að fara innrétta:)

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Heimsóknir
Í dag:  3  Alls: 91333
Leitarbox